Saturday, August 9, 2008

Sushi

Hong Kong er alþjóðleg stórborg og má því finna mat frá ölllum heimsálfum. Hér er hægt að borða ferskt ítalskt pasta, skoskt haagis, kóreska hot pot, danskar jólasmákökur, peking önd, indverskt naan og tikka masala, tælenskt pad thai og red curry, Shanghai gufusoðna grísafitu, argetínskar steikur, frönsk baguette, mexicanskt burrito, eðal amerískan skyndibita og pönnukökur með sýrópi, rétti frá Nepal, Víetnam, Þýskalandi, Grikklandi, Nýja Sjálandi, Malasíu, Filipseyjum og svona mætti lengi telja. Það er bara eitt, þú þarft að vera tilbúinn að borga töluvert meira en fyrir steikta önd með hrísgrjónum eða súpunúðlur. Það á sérstaklega við evrópskamatinn

Uppáhaldsmaturinn minn sem ekki er Hong Kong/Kína ættaður er sushi! Það er alveg ótrúlegur fjöldi sushi staða í Hong Kong og má finna stað sem henntar öllum stærðum og gerðum af peningabuddum...
Uppáhaldsstaðurinn minn heitir Genki Sushi og er sá allra ódýrasti sem þrátt fyrir lágt verð tekst að bjóða upp á ferskan og góðan fisk ásamt því að vera með skemmtilega fjölbreyttan matseðil.
Ummm tilhugsunin ein lætur mig langa í enn meira sushi...
Ég er með eina reglu þegar það kemur að sushi, en það er að prófa allavega einn nýjan bita í hvert skipti. Jú og drekka bara grænt te með.
Namm namm namm

Hérna má sjá glitta í Bostonrúllurnar, en í þeim er rjómaostur.... passar einstaklega vel

Jæja ég er farin að fá mér meira sushi...

Annars var þessi pistill einungis skrifaður til að gera Mömmu og Gunnu Mæju pínu öfundsjúkar.... c",)
Krabbasalats handrúllan (handroll) mín

2 comments:

Unknown said...

það er að takast. MAJOR SUCCESS skal ég þér segja. Til hamingju:Þ

ég skal sko bara segja þér það að ég er sko að fara bara að borða sushi i kvöld sko, humm humm...og aftur næsta sunnudag, svo ég er sko barast líka að borða sushi sko!
miss you
xxx

Sunna said...

Ha ha ha snilld!
En sry þú nærð mér ekki, er búin að borða sushi daglega síðustu 5 daga.... alveg óvart samt c",)
Fékk reyndar ekkert sushi í dag svo ég hugsa að ég fari í hádeginu á morgun ;)