Thursday, August 7, 2008

Stanley, asískir dansar og Ocean park


Síðasta laugardag skelltum við okkur til Stanley, sem er lítil bær á Hong Kong eyju, en hann er þekktastur fyrir að þar á að vera sæmileg hrein og fín strönd og skemmtilegur markaður, Stanley market. Við hoppuðum því um borð í strætó sem átti að keyra beint til Stanley skv. manninum í upplýsingabásnum. Svo var hins vegar ekki. Strætóinn tók um það bil klukkustundar langan hring um Tsim Sam Tsui (næsta hverfi við Hung Hom, þar sem ég bý) en ferðin allt í allt tók tæpa 2 tíma! Já og samkvæmt öllum túrista handbókunum sem hópurinn hefur komið höndum sínum á var mælt með því að taka strætóinn frá Central, sem er næsta stopp á eftir klst langa túrnum um TST... klárlega ein af verstu ákvörðunum sem við höfum tekið. Við komumst þó á leiðarenda eftir langa og skrikkjótta ferð.
Smelltum okkur því næst á hina margrómuðu Stanley strönd, en skv bókunum á hún að vera með betri ströndum Hong Kong. Og þar sem hingað til hefur okkur ekki líkað neitt sérstaklega við strendurnar hérna, ja eða sjóinn aðalega, hann er vanalega vandamálið, þá vorum við afar spennt yfir að komast á Stanley á léttskýjuðum degi.
Stöndin var gjörsamlega pökkuð af fólki, já það var hitt atriðið sem hópurinn ákváð að fara ekki eftir skv handbókunum...
"Forðiðst Stanley um helgar og á almennum frídögum"
Humm hefðum kannski áttað taka mark á þeim þar sem það var varla hægt að labba um bæinn vegna ótrúlegrar mannmergðar. Ímyndið ykkur Lækjargötu á 17.júní.
Ströndin sjálf eða það litla af sandinum sem við sáum fyrir fólki og handklæðum leit bara mjög vel út, flæðarmálið er hinsvegar þakið litlum hvössum steinum en sjórinn var ágætlega hreinn. Sjórinn hér myndi flokkast undir óásættanlegur á evrópskum ströndum, en eftir að hafa séð dauða fiska, smokka, fjöldan allan af plastflöskum og pokum, og ýmislegt fleira fljóta um í sjónum hérna, þá var þessi bara nokkuð fínn. Litlu steinarnir í flæðarmálinu náðu þó að skilja eftir sig ágætis ummerki á þó nokkrum táslum...
Litlir fiskibátar við höfnina í Stanley
Við nutum því seinni part dagsins í að flatmaga á störndinni og bleyta tærnar í sjónum.
Um kvöldið áttum við svo pantaða miða á Asíska danssýningu sem við héldum að væri sýning á fornum dönsum en í ljós kom að þetta voru allt saman modern dansar. Mér þótti það nú bara skemmtilegt, gaman að sjá munin á stílnum hérna og heima.
Það sem kom hins vegar mest á óvart var að eftir að sýningunni var lokið komu allir dansararnir fram á sviðið í venjulegum fötum til að svara spurningum áhorfenda um verkin þeirra. Eftir ca hálftíma af útskýringum á kínversku og stikkorðum á ensku hófst síðan "photo session" ! Jepp þá raðaði allt fólkið sér upp á bak við dansarana og rétti staffinu myndavélina sína. Okkur fannst þetta nú heldur undarlegt, mig langaði allavega ekkert sérstkalega til að eiga mynda af mér, 10 dönsurum og stórum hóp af ókunnugu fólki. Kínverjarnir voru nú ekki á sama máli þar sem þau voru afar spennt yfir því að hafa 5 hvíta útlendinga með á myndinni og fengum við ekki að fara fyrr en að heimsókn okkar í dansleikhúsið var fest á ca 50 mismunandi minniskort.

Á sunnudaginn hélt síðan fríður hópur af stað í dagsleiðangur í Ocean Park, sem er skemmtigarður hérna í Hong Kong. Fyrir sjóveika manneskju eins og mig þá voru það nú ekki rússíbanarnir sem heilluðu mig heldur 4 risa pöndur sem eiga heima í garðinum.
Þetta var frábær sólríkur dagur sem við eyddum að mestu leiti í að labba á milli tækja og standa í röð... en hann var samt mjög skemmtilegur. Sáum einnig vatnadanssýningu og höfrungar og sæljóna sýningu sem voru mjög flottar. Hef þetta ekki lengra í bili, læt pöndurnar sjá um að skemmta ykkur...

No comments: