Síðasta vika hefur verið heldur róleg, hef engan herbergisfélaga lengur og við virðumst gera lítið annað en að segja bless við einhvern á hverjum degi. Reyndar fela þessar tíðu brottfarir í sér afar tíð kveðjupartý og kveðjukvöldverði.
Annars var síðasti vinnudagurinn minn síðasta miðvikudag. Það skondna var að ég rakst á yfirmanninn minn síðasta mánudagskvöld þegar ég var að koma heim úr búðinni. Hann var heldur hissa á að sjá mig og sagði svo " I thought you left already!" Hef ekki séð hann í 2 vikur og hann hefur hvorki hringt né sent mér mail, svo það er kannski ekki skrítið að hann hélt að ég væri farin. Var samt nett móðguð að hann hefði ekki hugmynd um hvenær starfsmennirnir hans hættu að vinna fyrir hann. Ég hef annars ekkert þurft á honum að halda til að kenna sjálfri mér þau forrit sem ég átti að læra á til að geta klárað eitthvað verkefni fyrir hann. Ég lauk verkefninu einmitt á þriðjudaginn svo það var góð tímasetning.
Annars fór síðasti dagurinn minn í vinnunni í lítið annað en að skila inn hinum ýmsustu lyklum og kortum jú og sækja launin mín. Þau eru víst alltaf jafn sorgleg, en ættu að duga fyrir eyðslu í Taipei og síðustu dögunum hérna.
Á fimmtudaginn fór ég svo til Taipei í Taiwan með Anisiu frá Grikklandi, en hún er búin að vera baðherbergisfélaginn minn í sumar. Tvö samliggjandi herbergi deila baðherbergi.
Það var alveg frábært. Taipei er lágreistari borg en Hong Kong og fámennari, en það búa ekki nema 230þús í Taiwan skv leigubílstjóranum sem keyrði okkur á næturmarkað. Svo það er nú ekki nema von að það borgin sé fámennari. c",)
Mér líkaði ótrúlega vel við borgina, hún er nú kannski ekki mikið fyrir augað, ja eiginlega bara ekkert. Fyrir utan nokkrar nýjar nýtísku byggingar í miðbænum þá er meiri hluti bygginganna grá heldur skítug hús með búrum utan á, eins og Anisia lýsti þeim. Já hún er að læra arkitektúr, svo hún var nú ekki yfir sig heilluð af byggingarstíl Taipeibúa. Fólkið var hins vegar afar vinalegt og hjálpsamt. Meiri að segja þeir sem ekki töluðu stakt orð í ensku gerðu sitt besta til að hjálpa okkur að rata um, finna það sem við vorum að leita að eða segja okkur á kínversku hversu mikið hlutirni kostuðu. Það gekk alveg ótrúlega vel, 2 klst Mandarin (= kínverska) kennslan mín í flugvélinni á leiðinni til Singapore kom sé sko vel, allavega þegar að það kom að því að segja tölur. Var nokkuð stollt af sjálfri mér enda meira en 3 mánuðir síðan ég heyrði síðast Mandarin og Cantonese, sú kínverska sem þeir tala hérna í HK, er alls ekkert lík hinni.
Annars gekk ferðin afar vel, vorum rosa ánægðar með hótelið okkar þrátt fyrir að vera í úthverfi Taipei þá var það mjög áhugavert úthverfi. Svo áhugavert að við ákváðum að eyða síðasta deginum okkar þar í að röllta um. Sé sko ekki eftir því, tókst að finna mér spari skó þar sem eru ekki úr plasti eins og flestir skórnir hérna í HK. Eða allavega þeir sem ekki eru merktir Gucci eða Prada.
Við fórum upp í Taipei 101 tower sem er hæsta bygging í heimi, allavega eins og stendur. Það var ótrúlega skemmtilegt. Hef nú reyndar ekkert voðalega gaman af því að fara upp í háar byggingar, hef meiri áhuga á hvernig þeir byggja þær osf. Og þessi hefur heilan helling skemmtilegum hlutum fyrir litla forvitna verkfræðinga. Þeir eru meðal annars með hröðustu lyftu í heimi. Og með man-ekki-hvað-þungan risa stóran gullhnött þ.e. dempara á 88. hæð til að jafna út hristing og titring sérstaklega þegar fellibylir fara yfir. Allt saman mjög spennandi.
Kíktum líka á kvöldmarkað sem var mjög skemmtilegur.
Oh jæja sit á flugvellinum í Hong Kong eins og stendur og er að bíða eftir því að þeir leyfi minni sætaröð að fara um borð, svo ég læt þetta duga í bili. Annars er það bara London eftir 12 tíma og Ísland eftir ca 48klst! Svo þetta fer allt að taka enda...
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment