Saturday, August 9, 2008

Kammura, kínverskutími, kínversk ópera og kvöldverður á Tindinum

Síðasta miðvikudag fór fellibylurinn Kammura fram hjá Hong Kong og fengum við því öll frí í vinnunni. Það var því typhoon/náttfata/stelpupartý í mínu herbergi, ja eða svona, við hittumst nokkrar af stelpunum og söfnum öllu matarkynns sem við áttum. Það var reyndar afar fátæklegt, enda eldar ekki nokkurt okkar. Ja eða það hafa einhverjir "eldað" bollanúðlur, spurning hvort það að setja heitt vatn í tilbúin núðlupakka flokkist undir að elda. Þar sem við áttum ekkert nema súkkulaði, kex, appelsínudjús, kók og vatn og allar matvörubúðir lokaðar út af fellibylinum þá var þetta afar heilsusamlegur dagur.
Veðrinu léttu upp úr 6 svo um áttaleitið gátum við farið út að borða og ég held að ég hafi aldrei séð hópinn borða eins mikið! Flestir voru glorhungraðir eftir morgun og hádegismatarleysi. Þennan sama dag átti Leonidas, gríski strákurinn afmæli, svo við smelltum í körfu með öllu því sem hann elskar, allavega sem við vitum af eða sjáum hann stöðugt með. Það vakti mikla lukku.

Á fimmtudaginn eftir vinnu var IAESTE hérna búin að skipuleggja "Cantonese lesson" fyrir okkur þar sem þau fóru í gegnum helstu setningar og frasa ásamt því að læra skrifa tölurnar og einföld orð. Get nú ekki sagt að ég sé orðin altalandi en get núna státað mig af því að kunna aðeins meira en Halló og Takk.
Eftir tímann fórum við svo út að borða á Víetnömskum stað þar sem ég fékk karrýrétt sem bragðaðist eins og Mamma hefði gert hann. Allt öðruvísi bragð af karrýinu en tælensku og indverskukarrý. Fékk smá heimþrá og langar núna ótrúlega mikið í kjúkling með karrýsósu og brokkolí með.... Mamma má ég panta svoleiðis þegar ég kem heim?
Það má sjá glitta í svarthvítu skóna á þessari mynd sem tekin var í leyfisleysi... úps

Á föstudaginn skelltum við okkur nokkur í óperuna að sjá alvöru katóníska óperu. Það er ein tegund af kínverskri óperu, þar sem aðalpersónurnar eru allar málaðar rauðar og hvítar í framan í búningum með kjánalega löngum ermum og þegar konurnar syngja þá minnir það á ketti að væla í bland við einhvern sem hefur andað að sér aðeins of miklu af helíum. Já ég veit að þetta hljómaði ekki vel, en það var ótrúlega gaman að fara og sjá óperuna. Þeir eru reyndar ekki með texta hérna eins og heima, svo við skildum nú afar lítið og misstum af fjöldanum öllum af brandörum. Því eitt af fjölmörgu sem er öðruvísi við katónískar óperur en í hefðbundnum evrópskum er að þær eru fynndnar og samdar meira sem gamanleikur en drama og alvarlegur söguþráður eins og við erum meira vön.
Við gátum þó með hjálp wikipedia og 3G nettengingu í einum farsímanum komist að því hvaða tilgangi ermarnarþjónuðu. Á aðalleikurunum voru búningarnir þannig að ermarnar voru uþb 1 - 1 1/2 metra lengri en hendurnar á þeim og voru þau stöðugt að kasta þessum löngu ermum út og bretta þær aftur upp með vel æfðum og fíngerðum handahnykkjum og rykkingum. Þessi tilþrif leikaranna vöktu mikla kátínu meðal hópsins. Til gangur þeirra er víst að sýna sterkar tilfinningar... Þetta passaði allt saman við okkar litla skilning á óperunni en í hvert skipti sem aðalkarl- og kvennsöngvararnir voru að syngja/tala saman gerðu þau lítið annað en að kasta út ermunum og draga þær inn aftur.
Við komumst einnig að því að einungis karlmenn eru í svörtum og hvítum skóm, svona ef skrautlegu búningarnir þeirra villa eitthvað fyrir fólki.

Sunna og Sarah á góðri stundu
Á laugardaginn var svo síðasti dagur herbergisfélagans míns og fórum við því nokkur upp á The Peak til að fara út að borða. Þar eru staðsettir heldur fínni veitingastaðir en við erum vön að fara á, engir 200kr karrýréttir með fríum drykk með fyrir námsmenn hérna! Annars eru nú gestirnir aðalega að borga fyrir útsýnið, en það má sjá yfir alla Hong Kong borg þaðan.
Jepp ég var sko nokkuð sátt með eftirréttinn minn.... ummm


Sá þetta í einum leigubílnum hérna, ákvað að láta hana fylgja með, svo ef ske kynni að einhver væri ekki alveg mðe það á hreinu hvernig nota skuli bílbelti c",)

5 comments:

Unknown said...

Hæ ástin Þú verður bara að koma heim ef þú vilt fá mömmu-karrí-mat.
Það er alveg tímabært að fara að snúa aftur heim - það er allt of hljótt í húsinu eftir að stubbarnir fóru aftur heim til Stokkhólms.
xxx þín mamma

Unknown said...

Alltaf jafn gaman að fylgjast með þér og oooh hvað það er gaman hjá þér, ekki laust við að ég finni fyrir öfund!

Haltu áfram að njóta lífsins, það er stutt í heimferð.

Knús og kram

Unknown said...

Æðislegar færslur! og skemmtilegar myndir. Vá hvað verður gaman á myndakvöldi hjá okkur þegar þú kemur heim elsku sunna.
Veit ekki hvort þú hafir fengið skilaboðin frá mér en það er ss. stelpuhittingur 30. ágúst. Ekkert karrykjöt (sem betur fer!) en má alveg endilega vera sushi og bleikir koktailar.
Staðsetning: Skólavörðustígur.
Kys og kram.

Sunna said...

Ha ha ég er nú ekki svo hávær... en jú jú ég fer að koma. Bara 1 vika!
Og takk Eva mín, þú verður að koma í bæinn og knúsa mig!
Já og Gunna, ALLTAF. Hver á annars heima á skólavörðustíg?

Unknown said...

Hæ Sunna mín,
Hlökkum til að fá þig aftur heim.
Hringdu í okkur sem fyrst.
kær kveðja, mamma