Ég stóð því við nýja loforðið mitt og síðasta miðvikudag smellti ég mér aftur á blómamarkaðinn og í fuglagarðinn. Vildi sérstaklega ná að fara aftur í fuglagarðinn því síðast þegar við vorum þar var hann nánast búinn að loka.
Fuglagarðurinn er alveg ótrúlegur staður. Þangað koma fuglaeigendurnir, sá reyndar bara heldri karlmenn, með fuglana sína. Þeir hengja fuglabúrin upp í tré svo fuglarnir geti spjallað saman meðan eigendurnir rabba um daginn og vegin eða grípa í spil. Þarna eru svo til sölu ótrúlegur fjöldi fugla og allt sem þeim tilheyrir. Fuglabúr, hefðbundin fuglamatur eins og korn og fræ og svo lifandi pöddur og engisprettur. Ég er reyndar ekki alveg með það á hreinu afhverju þeir selja lifandi skordýr þarna, gæti verið fyrir stærri gerðir fugla. Ég var hinsvegar ekkert að hætt mér of nálægt til að spyrja til hvers þær væru.
Þetta er trikkið við blómin... þau koma úr pappakössum hérna en ekki upp úr moldinni c",)
Ég röllti svo götuna með öllum blómabúðunum og dáðist enn og aftur að þeim. Þau eru bara of litrík og falleg. Ég hélt því næst í áttina að Fa Yuen Street en þar er stór götumarkaður með öllu milli himins og jarðar og sitthvoru megin við götuna/markaðinn eru litlar og skemmtilegar búðir.Á markaðnum má finna allt frá mat, kornum, ferskum ávöxtum yfir í föt, náttföt, kjóla, nærföt, yfir í prjóna, regnhlífar, töskur, að sjálfsögðu ógirni eftirlíkinga í töskum og sólgeraugum, skó og svona mætti lengi telja. Í einni búðinni mátti finna ALLT með Hello Kitty, Bangsimon, Mikka mús og fleiri þekktum teiknimyndapersónum, og já ég meina allt. Frá töskum og pennum yfir í klukkur og myndir yfir í óvenjulegri hluti eins og sushi- og hrísgrjónamót og það sem mér fannst skemmtilegast, klósettsetur! Klárlega bráðnauðsynlegur hlutur á hverju heimili, ja ef ekki þá má næla sér í eins og eitt stykki Hello Kitty ostaskera eða fagurbleika kisu ruslapoka.
Ég var alvarlega að spá í að kaupa eina bara til að gefa einhverjum "heppnum" í jólagjöf
1 comment:
Jemin eini..ekki gefa okkur svona. Við mundum neyðast til að nota hana vegna yngsta fjölskldumeðlimsins.
Post a Comment