Wednesday, August 6, 2008

Alþjóðakvöld og Temple Street Night Market

Flöskuskeyti á leið til Íslands

Síðasta fimmtudag ákváðum við að halda alþjóðlega matar-,drykkjar- og menningarhátíð. Allir áttu að koma með eitthvað frá sínu heimalandi og kynna fyrir hinum. Þetta var smá vandamál fyrir mig þar sem Ísland er nú ekki beint þekkt fyrir að vera í miklum útflutningi (ekki miða við höfðatölu), við sjáum meira um að flytja inn vörur frá Kína og Hong Kong, ekki öfugt. Ég gat því nokkurnvegin gleymt því að ætla finna eitthvað al-íslenskt í búðunum hérna. Ég hafði nú reyndar hugsað fyrir þessu og keypti Nóa Kropp og Ópal staup í fríhöfninni til að bjóða upp á hérna. Nóa Kroppið gufaði upp í júní, tók uþb 2 kvöld fyrir 8 manna hóp að klára það en það gekk ekki alveg jafn vel að koma Ópal staupunum út. Ég átti því ennþá nánast ósnerta flösku ef Ópal, en fannst það ekki alveg nóg svo ég ákvað að gera fána handa öllum. Ég keypti grillpinna og töflutússpenna og hóf fjöldaframleiðslu á litlum íslenskum fánum. Leið pínulítið eins og ég væri 6 ára aftur, að lita íslenska fánann... minnti mig á Sindra Dag. Ég keypti líka einn ódýran hvítan stuttermabol og bláan og rauðan borða sem ég "saumaði" á bolinn. Ég hélt að þetta tækin enga stund, en borðarnir voru sleipir og bolurinn teygjanlegur svo ja við skulum bara segja að saumaskapurinn var ekki upp á marga fiska.
Ég mætti því uppklædd í íslenska fánanum með 25 litla fána í annari og ópalflösku í hinni. Ég öfundaði nú nokkra af því hversu einfalt það er að nálgast vörur frá þeirra löndum hérna... Danirnir þurftu nú lítið að hafa fyrir því að finna nokkra kassa af Carlsberg bjór en þau fundu líka kassa af dönskum jólasmákökum, grikkirnir útbjuggu grískt salat og sáu um að spila gríska tónlist, írarnir buðu upp á Irish coffee, spánverjinn sá um að blanda eina 20 lítra af Sangriu í þvottabala og kanarnir komu með McDonalds, kók og sáu um drykkuleiki seinna um kvöldið. Bretarnir áttu nú ekki í miklum vandræðum með að nálgast vörur frá þeirra landi stödd í fyrrum nýlendunni sinni svo þau komu með allskonar kex, kökur, Pimm's (einhver ginblandaður sumardrykkur) og þjóðverjarnir buðu upp á ýmsar tegundir af Weiss bier. Hrós fyrir metnað og dugnað í að kynna sitt land deila danska stelpan sem bjó til danska tertu þar sem einn af dönsku strákunum átti afmæli og skotinn sem tókst að finna Haagis, en það er einfaldlega all nema vöðvar og bein, einnig þekkt sem öll innyfli á lambi sett í hakkavél og eldað í einhverskonar poka. Eitthvað sem pabba myndi eflaust líka betur við en mér.
Hong Kong ættaði norsarinn
Þetta var alveg hreint frábært kvöld og ótrúlega gaman að smakka alla þessa ólíku rétti, þótt meiri hlutinn væri áfengirdrykkir. Vísindaleg tilraun var gerð á því hverjum líkaði ópal staupin, og höfum við komist að þeirri niðurstöðu að Norður-Evrópubúar innbyrgða meiri svartan lakkrís en aðrir og þar af skara Norðurlandabúarnir frammúr. Það þarf vart að taka það fram en Öllum norðulandabúunum líkaði Ópalinn afar vel.
Ég sagði hinum sem lýstu staupunum á við hóstasaft að þau gætu nú bara þakkað sínu sæla að ég tók ekki brennivín, harðfisk og hákarl með mér! Hefði nú reyndar viljað sjá svipin á þeim ef ég hefði mætt með yndislega angandi kæstan harðfisk og boðið upp á brennivínsstaup með....

Temple Street Night Market
Á föstudaginn fórum við snemma út að borða þar sem þriðji einstaklingurinn til að fara heim átti flug seinna sama kvöld. Meiri hluti hópsins var einnig lurkum laminn eftir alþjóðlega drykkjarsmökkun frá fyrra kvöldi og var þetta því heldur rólegt föstudagskvöld hjá hópnum.
Ég skellti mér á Temple Street Night Market með Clemy frá Bretlandi, á meðan strákarnir skelltu sér á eitt fínasta hótel í heimi, Peninsula, til að prófa margrómað karlakósett. Er salernið frægt fyrir það að skálarnar snúa að Victoria Harbour og er það víst með magnað útsýni yfir höfnina. Þarna getur því karlpeningurinn skemmt sé við að míga gengt glerglugga á einni af efstu hæðum hótelsins meðan þeir njóta útsýnisins. Hótelið býður því miður ekki upp á eins skemmtilega salernisaðstöðu fyrir konur, skilst að speglarnir snúi baki í gluggana. Klárlega ekki jafn spennandi og fyrir strákanna.
Street Food = götumatur á markaðnum

Markaðurinn, eins og nafnið gefur til kynna lifnar við að kvöldi til, en hann er staðsettur í fjölmennasta og þéttbýlasta íbúðarhverfi heims Mong Kok (staðfest af Heimsmetabók Guinnes). Þessi markaður er meira ætlaður handa ferðamönnum en hinir sem ég hef farið á, svo þar mátti sjá meira af ódýru kínadóti, silkisloppum, penslar, tebollar, töskur í þúsundatali, vinkandi köttum, endalaust úrval úra, sólgeraugna og þar sem þetta er asía þá má víst finna allt milli himins og jarðar merkt bangsímon, helló kitty og öllum hini þekktu teiknimyndapersónunum þar.
Hvernig lýst ykkur á nýju gleraugunu mín?!?

4 comments:

Unknown said...

sakna thin dullinn minn!!

Unknown said...

Hæ ástin það er gaman að fylgjast með ævintýrym þínum. Hlökkum til að fá þig aftur heim. xxx þín mamma

Unknown said...

Hæ Sunna mín!!
Var fyrst núna að byrja kíkja á þetta magnaða blogg þitt (man hvað það var fáránlega skemmtilegt að skrifa svona ferðablogg í gamla daga á svona framandi slóðum...er ekkert smá öfundsjúk!!) Þetta hljómar allt geðveikt sem þú ert búin að vera gera og þú ert vægast sagt mjööög góð í myndatökunum!
Ég sem hélt að þú værir að fara vinna??? (hahaha...)

Hafðu það áfram ótrúlega gott og ég veit að þú munt skemmta þér ýkt vel þarna úti!

p.s. Mæli eindregið með einni fataverslun þarna sem þú munt pottþétt fíla, sem heitir Bread´n´Butter og var í einu af stóru mall-unum þarna sem ég man ekki hvað heitir...(mikil hjálp - ég veit,en hún er mjög krúttleg og lítil ef þú finnur hana...)

Stórir knúsar,
//helga grethe :)

Sunna said...

Takk fyrir tipsið Helga mín, ég sá þessa búð einmitt í síðustu viku og hugsaði með mér að ég þyrfti að kíkja þangað inn! Skemmtileg tilviljun....

já og mamma það er nú bara 2 vikur í að ég komi aftur.... þú getur farið að telja niður daganna c",)