Monday, August 25, 2008

Síðasta vika hefur verið heldur róleg, hef engan herbergisfélaga lengur og við virðumst gera lítið annað en að segja bless við einhvern á hverjum degi. Reyndar fela þessar tíðu brottfarir í sér afar tíð kveðjupartý og kveðjukvöldverði.
Annars var síðasti vinnudagurinn minn síðasta miðvikudag. Það skondna var að ég rakst á yfirmanninn minn síðasta mánudagskvöld þegar ég var að koma heim úr búðinni. Hann var heldur hissa á að sjá mig og sagði svo " I thought you left already!" Hef ekki séð hann í 2 vikur og hann hefur hvorki hringt né sent mér mail, svo það er kannski ekki skrítið að hann hélt að ég væri farin. Var samt nett móðguð að hann hefði ekki hugmynd um hvenær starfsmennirnir hans hættu að vinna fyrir hann. Ég hef annars ekkert þurft á honum að halda til að kenna sjálfri mér þau forrit sem ég átti að læra á til að geta klárað eitthvað verkefni fyrir hann. Ég lauk verkefninu einmitt á þriðjudaginn svo það var góð tímasetning.
Annars fór síðasti dagurinn minn í vinnunni í lítið annað en að skila inn hinum ýmsustu lyklum og kortum jú og sækja launin mín. Þau eru víst alltaf jafn sorgleg, en ættu að duga fyrir eyðslu í Taipei og síðustu dögunum hérna.

Á fimmtudaginn fór ég svo til Taipei í Taiwan með Anisiu frá Grikklandi, en hún er búin að vera baðherbergisfélaginn minn í sumar. Tvö samliggjandi herbergi deila baðherbergi.
Það var alveg frábært. Taipei er lágreistari borg en Hong Kong og fámennari, en það búa ekki nema 230þús í Taiwan skv leigubílstjóranum sem keyrði okkur á næturmarkað. Svo það er nú ekki nema von að það borgin sé fámennari. c",)
Mér líkaði ótrúlega vel við borgina, hún er nú kannski ekki mikið fyrir augað, ja eiginlega bara ekkert. Fyrir utan nokkrar nýjar nýtísku byggingar í miðbænum þá er meiri hluti bygginganna grá heldur skítug hús með búrum utan á, eins og Anisia lýsti þeim. Já hún er að læra arkitektúr, svo hún var nú ekki yfir sig heilluð af byggingarstíl Taipeibúa. Fólkið var hins vegar afar vinalegt og hjálpsamt. Meiri að segja þeir sem ekki töluðu stakt orð í ensku gerðu sitt besta til að hjálpa okkur að rata um, finna það sem við vorum að leita að eða segja okkur á kínversku hversu mikið hlutirni kostuðu. Það gekk alveg ótrúlega vel, 2 klst Mandarin (= kínverska) kennslan mín í flugvélinni á leiðinni til Singapore kom sé sko vel, allavega þegar að það kom að því að segja tölur. Var nokkuð stollt af sjálfri mér enda meira en 3 mánuðir síðan ég heyrði síðast Mandarin og Cantonese, sú kínverska sem þeir tala hérna í HK, er alls ekkert lík hinni.

Annars gekk ferðin afar vel, vorum rosa ánægðar með hótelið okkar þrátt fyrir að vera í úthverfi Taipei þá var það mjög áhugavert úthverfi. Svo áhugavert að við ákváðum að eyða síðasta deginum okkar þar í að röllta um. Sé sko ekki eftir því, tókst að finna mér spari skó þar sem eru ekki úr plasti eins og flestir skórnir hérna í HK. Eða allavega þeir sem ekki eru merktir Gucci eða Prada.

Við fórum upp í Taipei 101 tower sem er hæsta bygging í heimi, allavega eins og stendur. Það var ótrúlega skemmtilegt. Hef nú reyndar ekkert voðalega gaman af því að fara upp í háar byggingar, hef meiri áhuga á hvernig þeir byggja þær osf. Og þessi hefur heilan helling skemmtilegum hlutum fyrir litla forvitna verkfræðinga. Þeir eru meðal annars með hröðustu lyftu í heimi. Og með man-ekki-hvað-þungan risa stóran gullhnött þ.e. dempara á 88. hæð til að jafna út hristing og titring sérstaklega þegar fellibylir fara yfir. Allt saman mjög spennandi.
Kíktum líka á kvöldmarkað sem var mjög skemmtilegur.

Oh jæja sit á flugvellinum í Hong Kong eins og stendur og er að bíða eftir því að þeir leyfi minni sætaröð að fara um borð, svo ég læt þetta duga í bili. Annars er það bara London eftir 12 tíma og Ísland eftir ca 48klst! Svo þetta fer allt að taka enda...

Saturday, August 9, 2008

Kammura, kínverskutími, kínversk ópera og kvöldverður á Tindinum

Síðasta miðvikudag fór fellibylurinn Kammura fram hjá Hong Kong og fengum við því öll frí í vinnunni. Það var því typhoon/náttfata/stelpupartý í mínu herbergi, ja eða svona, við hittumst nokkrar af stelpunum og söfnum öllu matarkynns sem við áttum. Það var reyndar afar fátæklegt, enda eldar ekki nokkurt okkar. Ja eða það hafa einhverjir "eldað" bollanúðlur, spurning hvort það að setja heitt vatn í tilbúin núðlupakka flokkist undir að elda. Þar sem við áttum ekkert nema súkkulaði, kex, appelsínudjús, kók og vatn og allar matvörubúðir lokaðar út af fellibylinum þá var þetta afar heilsusamlegur dagur.
Veðrinu léttu upp úr 6 svo um áttaleitið gátum við farið út að borða og ég held að ég hafi aldrei séð hópinn borða eins mikið! Flestir voru glorhungraðir eftir morgun og hádegismatarleysi. Þennan sama dag átti Leonidas, gríski strákurinn afmæli, svo við smelltum í körfu með öllu því sem hann elskar, allavega sem við vitum af eða sjáum hann stöðugt með. Það vakti mikla lukku.

Á fimmtudaginn eftir vinnu var IAESTE hérna búin að skipuleggja "Cantonese lesson" fyrir okkur þar sem þau fóru í gegnum helstu setningar og frasa ásamt því að læra skrifa tölurnar og einföld orð. Get nú ekki sagt að ég sé orðin altalandi en get núna státað mig af því að kunna aðeins meira en Halló og Takk.
Eftir tímann fórum við svo út að borða á Víetnömskum stað þar sem ég fékk karrýrétt sem bragðaðist eins og Mamma hefði gert hann. Allt öðruvísi bragð af karrýinu en tælensku og indverskukarrý. Fékk smá heimþrá og langar núna ótrúlega mikið í kjúkling með karrýsósu og brokkolí með.... Mamma má ég panta svoleiðis þegar ég kem heim?
Það má sjá glitta í svarthvítu skóna á þessari mynd sem tekin var í leyfisleysi... úps

Á föstudaginn skelltum við okkur nokkur í óperuna að sjá alvöru katóníska óperu. Það er ein tegund af kínverskri óperu, þar sem aðalpersónurnar eru allar málaðar rauðar og hvítar í framan í búningum með kjánalega löngum ermum og þegar konurnar syngja þá minnir það á ketti að væla í bland við einhvern sem hefur andað að sér aðeins of miklu af helíum. Já ég veit að þetta hljómaði ekki vel, en það var ótrúlega gaman að fara og sjá óperuna. Þeir eru reyndar ekki með texta hérna eins og heima, svo við skildum nú afar lítið og misstum af fjöldanum öllum af brandörum. Því eitt af fjölmörgu sem er öðruvísi við katónískar óperur en í hefðbundnum evrópskum er að þær eru fynndnar og samdar meira sem gamanleikur en drama og alvarlegur söguþráður eins og við erum meira vön.
Við gátum þó með hjálp wikipedia og 3G nettengingu í einum farsímanum komist að því hvaða tilgangi ermarnarþjónuðu. Á aðalleikurunum voru búningarnir þannig að ermarnar voru uþb 1 - 1 1/2 metra lengri en hendurnar á þeim og voru þau stöðugt að kasta þessum löngu ermum út og bretta þær aftur upp með vel æfðum og fíngerðum handahnykkjum og rykkingum. Þessi tilþrif leikaranna vöktu mikla kátínu meðal hópsins. Til gangur þeirra er víst að sýna sterkar tilfinningar... Þetta passaði allt saman við okkar litla skilning á óperunni en í hvert skipti sem aðalkarl- og kvennsöngvararnir voru að syngja/tala saman gerðu þau lítið annað en að kasta út ermunum og draga þær inn aftur.
Við komumst einnig að því að einungis karlmenn eru í svörtum og hvítum skóm, svona ef skrautlegu búningarnir þeirra villa eitthvað fyrir fólki.

Sunna og Sarah á góðri stundu
Á laugardaginn var svo síðasti dagur herbergisfélagans míns og fórum við því nokkur upp á The Peak til að fara út að borða. Þar eru staðsettir heldur fínni veitingastaðir en við erum vön að fara á, engir 200kr karrýréttir með fríum drykk með fyrir námsmenn hérna! Annars eru nú gestirnir aðalega að borga fyrir útsýnið, en það má sjá yfir alla Hong Kong borg þaðan.
Jepp ég var sko nokkuð sátt með eftirréttinn minn.... ummm


Sá þetta í einum leigubílnum hérna, ákvað að láta hana fylgja með, svo ef ske kynni að einhver væri ekki alveg mðe það á hreinu hvernig nota skuli bílbelti c",)

Sushi

Hong Kong er alþjóðleg stórborg og má því finna mat frá ölllum heimsálfum. Hér er hægt að borða ferskt ítalskt pasta, skoskt haagis, kóreska hot pot, danskar jólasmákökur, peking önd, indverskt naan og tikka masala, tælenskt pad thai og red curry, Shanghai gufusoðna grísafitu, argetínskar steikur, frönsk baguette, mexicanskt burrito, eðal amerískan skyndibita og pönnukökur með sýrópi, rétti frá Nepal, Víetnam, Þýskalandi, Grikklandi, Nýja Sjálandi, Malasíu, Filipseyjum og svona mætti lengi telja. Það er bara eitt, þú þarft að vera tilbúinn að borga töluvert meira en fyrir steikta önd með hrísgrjónum eða súpunúðlur. Það á sérstaklega við evrópskamatinn

Uppáhaldsmaturinn minn sem ekki er Hong Kong/Kína ættaður er sushi! Það er alveg ótrúlegur fjöldi sushi staða í Hong Kong og má finna stað sem henntar öllum stærðum og gerðum af peningabuddum...
Uppáhaldsstaðurinn minn heitir Genki Sushi og er sá allra ódýrasti sem þrátt fyrir lágt verð tekst að bjóða upp á ferskan og góðan fisk ásamt því að vera með skemmtilega fjölbreyttan matseðil.
Ummm tilhugsunin ein lætur mig langa í enn meira sushi...
Ég er með eina reglu þegar það kemur að sushi, en það er að prófa allavega einn nýjan bita í hvert skipti. Jú og drekka bara grænt te með.
Namm namm namm

Hérna má sjá glitta í Bostonrúllurnar, en í þeim er rjómaostur.... passar einstaklega vel

Jæja ég er farin að fá mér meira sushi...

Annars var þessi pistill einungis skrifaður til að gera Mömmu og Gunnu Mæju pínu öfundsjúkar.... c",)
Krabbasalats handrúllan (handroll) mín

Thursday, August 7, 2008

Stanley, asískir dansar og Ocean park


Síðasta laugardag skelltum við okkur til Stanley, sem er lítil bær á Hong Kong eyju, en hann er þekktastur fyrir að þar á að vera sæmileg hrein og fín strönd og skemmtilegur markaður, Stanley market. Við hoppuðum því um borð í strætó sem átti að keyra beint til Stanley skv. manninum í upplýsingabásnum. Svo var hins vegar ekki. Strætóinn tók um það bil klukkustundar langan hring um Tsim Sam Tsui (næsta hverfi við Hung Hom, þar sem ég bý) en ferðin allt í allt tók tæpa 2 tíma! Já og samkvæmt öllum túrista handbókunum sem hópurinn hefur komið höndum sínum á var mælt með því að taka strætóinn frá Central, sem er næsta stopp á eftir klst langa túrnum um TST... klárlega ein af verstu ákvörðunum sem við höfum tekið. Við komumst þó á leiðarenda eftir langa og skrikkjótta ferð.
Smelltum okkur því næst á hina margrómuðu Stanley strönd, en skv bókunum á hún að vera með betri ströndum Hong Kong. Og þar sem hingað til hefur okkur ekki líkað neitt sérstaklega við strendurnar hérna, ja eða sjóinn aðalega, hann er vanalega vandamálið, þá vorum við afar spennt yfir að komast á Stanley á léttskýjuðum degi.
Stöndin var gjörsamlega pökkuð af fólki, já það var hitt atriðið sem hópurinn ákváð að fara ekki eftir skv handbókunum...
"Forðiðst Stanley um helgar og á almennum frídögum"
Humm hefðum kannski áttað taka mark á þeim þar sem það var varla hægt að labba um bæinn vegna ótrúlegrar mannmergðar. Ímyndið ykkur Lækjargötu á 17.júní.
Ströndin sjálf eða það litla af sandinum sem við sáum fyrir fólki og handklæðum leit bara mjög vel út, flæðarmálið er hinsvegar þakið litlum hvössum steinum en sjórinn var ágætlega hreinn. Sjórinn hér myndi flokkast undir óásættanlegur á evrópskum ströndum, en eftir að hafa séð dauða fiska, smokka, fjöldan allan af plastflöskum og pokum, og ýmislegt fleira fljóta um í sjónum hérna, þá var þessi bara nokkuð fínn. Litlu steinarnir í flæðarmálinu náðu þó að skilja eftir sig ágætis ummerki á þó nokkrum táslum...
Litlir fiskibátar við höfnina í Stanley
Við nutum því seinni part dagsins í að flatmaga á störndinni og bleyta tærnar í sjónum.
Um kvöldið áttum við svo pantaða miða á Asíska danssýningu sem við héldum að væri sýning á fornum dönsum en í ljós kom að þetta voru allt saman modern dansar. Mér þótti það nú bara skemmtilegt, gaman að sjá munin á stílnum hérna og heima.
Það sem kom hins vegar mest á óvart var að eftir að sýningunni var lokið komu allir dansararnir fram á sviðið í venjulegum fötum til að svara spurningum áhorfenda um verkin þeirra. Eftir ca hálftíma af útskýringum á kínversku og stikkorðum á ensku hófst síðan "photo session" ! Jepp þá raðaði allt fólkið sér upp á bak við dansarana og rétti staffinu myndavélina sína. Okkur fannst þetta nú heldur undarlegt, mig langaði allavega ekkert sérstkalega til að eiga mynda af mér, 10 dönsurum og stórum hóp af ókunnugu fólki. Kínverjarnir voru nú ekki á sama máli þar sem þau voru afar spennt yfir því að hafa 5 hvíta útlendinga með á myndinni og fengum við ekki að fara fyrr en að heimsókn okkar í dansleikhúsið var fest á ca 50 mismunandi minniskort.

Á sunnudaginn hélt síðan fríður hópur af stað í dagsleiðangur í Ocean Park, sem er skemmtigarður hérna í Hong Kong. Fyrir sjóveika manneskju eins og mig þá voru það nú ekki rússíbanarnir sem heilluðu mig heldur 4 risa pöndur sem eiga heima í garðinum.
Þetta var frábær sólríkur dagur sem við eyddum að mestu leiti í að labba á milli tækja og standa í röð... en hann var samt mjög skemmtilegur. Sáum einnig vatnadanssýningu og höfrungar og sæljóna sýningu sem voru mjög flottar. Hef þetta ekki lengra í bili, læt pöndurnar sjá um að skemmta ykkur...

Wednesday, August 6, 2008

Alþjóðakvöld og Temple Street Night Market

Flöskuskeyti á leið til Íslands

Síðasta fimmtudag ákváðum við að halda alþjóðlega matar-,drykkjar- og menningarhátíð. Allir áttu að koma með eitthvað frá sínu heimalandi og kynna fyrir hinum. Þetta var smá vandamál fyrir mig þar sem Ísland er nú ekki beint þekkt fyrir að vera í miklum útflutningi (ekki miða við höfðatölu), við sjáum meira um að flytja inn vörur frá Kína og Hong Kong, ekki öfugt. Ég gat því nokkurnvegin gleymt því að ætla finna eitthvað al-íslenskt í búðunum hérna. Ég hafði nú reyndar hugsað fyrir þessu og keypti Nóa Kropp og Ópal staup í fríhöfninni til að bjóða upp á hérna. Nóa Kroppið gufaði upp í júní, tók uþb 2 kvöld fyrir 8 manna hóp að klára það en það gekk ekki alveg jafn vel að koma Ópal staupunum út. Ég átti því ennþá nánast ósnerta flösku ef Ópal, en fannst það ekki alveg nóg svo ég ákvað að gera fána handa öllum. Ég keypti grillpinna og töflutússpenna og hóf fjöldaframleiðslu á litlum íslenskum fánum. Leið pínulítið eins og ég væri 6 ára aftur, að lita íslenska fánann... minnti mig á Sindra Dag. Ég keypti líka einn ódýran hvítan stuttermabol og bláan og rauðan borða sem ég "saumaði" á bolinn. Ég hélt að þetta tækin enga stund, en borðarnir voru sleipir og bolurinn teygjanlegur svo ja við skulum bara segja að saumaskapurinn var ekki upp á marga fiska.
Ég mætti því uppklædd í íslenska fánanum með 25 litla fána í annari og ópalflösku í hinni. Ég öfundaði nú nokkra af því hversu einfalt það er að nálgast vörur frá þeirra löndum hérna... Danirnir þurftu nú lítið að hafa fyrir því að finna nokkra kassa af Carlsberg bjór en þau fundu líka kassa af dönskum jólasmákökum, grikkirnir útbjuggu grískt salat og sáu um að spila gríska tónlist, írarnir buðu upp á Irish coffee, spánverjinn sá um að blanda eina 20 lítra af Sangriu í þvottabala og kanarnir komu með McDonalds, kók og sáu um drykkuleiki seinna um kvöldið. Bretarnir áttu nú ekki í miklum vandræðum með að nálgast vörur frá þeirra landi stödd í fyrrum nýlendunni sinni svo þau komu með allskonar kex, kökur, Pimm's (einhver ginblandaður sumardrykkur) og þjóðverjarnir buðu upp á ýmsar tegundir af Weiss bier. Hrós fyrir metnað og dugnað í að kynna sitt land deila danska stelpan sem bjó til danska tertu þar sem einn af dönsku strákunum átti afmæli og skotinn sem tókst að finna Haagis, en það er einfaldlega all nema vöðvar og bein, einnig þekkt sem öll innyfli á lambi sett í hakkavél og eldað í einhverskonar poka. Eitthvað sem pabba myndi eflaust líka betur við en mér.
Hong Kong ættaði norsarinn
Þetta var alveg hreint frábært kvöld og ótrúlega gaman að smakka alla þessa ólíku rétti, þótt meiri hlutinn væri áfengirdrykkir. Vísindaleg tilraun var gerð á því hverjum líkaði ópal staupin, og höfum við komist að þeirri niðurstöðu að Norður-Evrópubúar innbyrgða meiri svartan lakkrís en aðrir og þar af skara Norðurlandabúarnir frammúr. Það þarf vart að taka það fram en Öllum norðulandabúunum líkaði Ópalinn afar vel.
Ég sagði hinum sem lýstu staupunum á við hóstasaft að þau gætu nú bara þakkað sínu sæla að ég tók ekki brennivín, harðfisk og hákarl með mér! Hefði nú reyndar viljað sjá svipin á þeim ef ég hefði mætt með yndislega angandi kæstan harðfisk og boðið upp á brennivínsstaup með....

Temple Street Night Market
Á föstudaginn fórum við snemma út að borða þar sem þriðji einstaklingurinn til að fara heim átti flug seinna sama kvöld. Meiri hluti hópsins var einnig lurkum laminn eftir alþjóðlega drykkjarsmökkun frá fyrra kvöldi og var þetta því heldur rólegt föstudagskvöld hjá hópnum.
Ég skellti mér á Temple Street Night Market með Clemy frá Bretlandi, á meðan strákarnir skelltu sér á eitt fínasta hótel í heimi, Peninsula, til að prófa margrómað karlakósett. Er salernið frægt fyrir það að skálarnar snúa að Victoria Harbour og er það víst með magnað útsýni yfir höfnina. Þarna getur því karlpeningurinn skemmt sé við að míga gengt glerglugga á einni af efstu hæðum hótelsins meðan þeir njóta útsýnisins. Hótelið býður því miður ekki upp á eins skemmtilega salernisaðstöðu fyrir konur, skilst að speglarnir snúi baki í gluggana. Klárlega ekki jafn spennandi og fyrir strákanna.
Street Food = götumatur á markaðnum

Markaðurinn, eins og nafnið gefur til kynna lifnar við að kvöldi til, en hann er staðsettur í fjölmennasta og þéttbýlasta íbúðarhverfi heims Mong Kok (staðfest af Heimsmetabók Guinnes). Þessi markaður er meira ætlaður handa ferðamönnum en hinir sem ég hef farið á, svo þar mátti sjá meira af ódýru kínadóti, silkisloppum, penslar, tebollar, töskur í þúsundatali, vinkandi köttum, endalaust úrval úra, sólgeraugna og þar sem þetta er asía þá má víst finna allt milli himins og jarðar merkt bangsímon, helló kitty og öllum hini þekktu teiknimyndapersónunum þar.
Hvernig lýst ykkur á nýju gleraugunu mín?!?

Tuesday, August 5, 2008

Fuglar, blóm og Fa Yuen Street markaðurinn

Flesta daga mæti ég í vinnuna milli 9 og 10. Ótrúlegt en satt þá er ég með þeim fyrstu til að mæta, en þau mæta flest um 10:30. Og þrátt fyrir að taka rúmlega klukkutíma hádegismat á hverjum degi nægir mér að vinna til 4 eða 5 á daginn til að klára það sem mér er ætlað að gera. Undanfarið hef ég oftast haldið heim á leið eftir vinnu og þar sem við förum yfirleitt í kvöldmat um 7 þá þýðir það að það verður ansi lítið úr deginum. Ég hef því sett sjálfri mér nýja reglu, sem er að mæta upp úr 9 í vinnuna svo ég geti hætt um eða fyrir 4 án samviskubits og skoðað meira af borginni. Hong Kong er alveg ótrúlega stór þrátt fyrir að vera lítil landfræðilega séð og ég hugsa að þótt ég hefði ár hérna næði ég ekki að labba allar götur borgarinnar eða gera allt sem hægt er að gera hérna.
Fuglarnir hittast hérna og rabba saman
Ég stóð því við nýja loforðið mitt og síðasta miðvikudag smellti ég mér aftur á blómamarkaðinn og í fuglagarðinn. Vildi sérstaklega ná að fara aftur í fuglagarðinn því síðast þegar við vorum þar var hann nánast búinn að loka.
Fuglagarðurinn er alveg ótrúlegur staður. Þangað koma fuglaeigendurnir, sá reyndar bara heldri karlmenn, með fuglana sína. Þeir hengja fuglabúrin upp í tré svo fuglarnir geti spjallað saman meðan eigendurnir rabba um daginn og vegin eða grípa í spil. Þarna eru svo til sölu ótrúlegur fjöldi fugla og allt sem þeim tilheyrir. Fuglabúr, hefðbundin fuglamatur eins og korn og fræ og svo lifandi pöddur og engisprettur. Ég er reyndar ekki alveg með það á hreinu afhverju þeir selja lifandi skordýr þarna, gæti verið fyrir stærri gerðir fugla. Ég var hinsvegar ekkert að hætt mér of nálægt til að spyrja til hvers þær væru.
Fuglabúrin voru mun áhugaverðari að skoða. Þau eru listaverk útaf fyrir sig. Mig langaði að kaupa nokkur án þess að hafa nokkurn áhuga á að eiga fugl.

Þetta er trikkið við blómin... þau koma úr pappakössum hérna en ekki upp úr moldinni c",)
Vatnaliljur
Ég röllti svo götuna með öllum blómabúðunum og dáðist enn og aftur að þeim. Þau eru bara of litrík og falleg. Ég hélt því næst í áttina að Fa Yuen Street en þar er stór götumarkaður með öllu milli himins og jarðar og sitthvoru megin við götuna/markaðinn eru litlar og skemmtilegar búðir.
Á markaðnum má finna allt frá mat, kornum, ferskum ávöxtum yfir í föt, náttföt, kjóla, nærföt, yfir í prjóna, regnhlífar, töskur, að sjálfsögðu ógirni eftirlíkinga í töskum og sólgeraugum, skó og svona mætti lengi telja. Í einni búðinni mátti finna ALLT með Hello Kitty, Bangsimon, Mikka mús og fleiri þekktum teiknimyndapersónum, og já ég meina allt. Frá töskum og pennum yfir í klukkur og myndir yfir í óvenjulegri hluti eins og sushi- og hrísgrjónamót og það sem mér fannst skemmtilegast, klósettsetur! Klárlega bráðnauðsynlegur hlutur á hverju heimili, ja ef ekki þá má næla sér í eins og eitt stykki Hello Kitty ostaskera eða fagurbleika kisu ruslapoka.

Ég var alvarlega að spá í að kaupa eina bara til að gefa einhverjum "heppnum" í jólagjöf