Saturday, July 5, 2008

The Peak og þjóðhatíðardagar Kanada og Hong Kong

Þriðjudagurinn 1.júlí er þjóðhátíðardagur Hong Kong og er hann því almennur frídagur. Því finnst Hong Kong búum, líkt og okkur Íslendingum afar kjörið tækifæri að nýta kvöldið áður til skemmtanahalda og drykkju. Við hófum kvöldið á okkar hefðbundina hátt, hittumst í félagsaðstöðunni á 17. hæð og fengum okkur nokkra bjóra. Á hverri hæð á stúdentagörðunum hérna er opið rými þar sem eru nokkrir sófar, sjónvarp, hellur og þvottavél og þurkari.

Þrátt fyrir að drykkir á börum bæjarins séu skuggalega dýrir þá kostar bjór út í næstu búð afar lítið. Sérstaklega þar sem 7-eleven er með tilboð 2 fyrir 170kr, eða 12 litlir á 310kr og erum við þeim afar þakklát.
Eftir stundargaman á 17.hæðinni var stefnan tekin á Hong Kong eyju en þar er aðal bar- og skemmtistaða hverfi Hong Kong, Lan Kwai Fong. Það kom okkur mjög á óvart að daginn fyrir þjóðhátíðardag landsins þá voru það ekki fánar Hong Kong sem hengu út um allt, heldur Kanada fáninn! Kanada og Hong Kong deila víst sama þjóðahátíðardegi.







Sumir ákváðu að halda upp á þjóðhátíðardag Kanadamanna í aðeins færri fötum en við hin....








Á þjóðhátíðardaginn sjálfann, eða "dependent day" eins og hann nefnist hérna og mér finnst skemmtilega skrítið, skelltum við okkur upp á hæsta fjall Hong Kong eyju, The Peak, sem hefur eitt ófrumlegasta nafn sem um getur fyrir fjall. Toppurinn á "Toppinum" er í 550 metra hæð en þaðan er hægt að sjá yfir alla borgina.















Sunna & Sarah með borgina í bakgrunn











Eftir strætóferðina aftur niður skelltum við Sarah okkur á Avenue of Stars sem er göngugata meðfram sjónum en hún er tileinkuð þeim sem hafa skarað fram úr í kínverska kvikmyndaheiminum. Hérna fá útvaldir nafnið sitt á stjörnu í gangstéttinni með handaförunum sínum... hljómar þetta pínu kunnulega?












Á hverju kvöldi klukkan 20 er svo ljósasýning eða "Symphony of lights" en þá eru byggingarnar báðu megin við Victoria Harbour lýstar upp með ljósum og leyser á meðan er tónlist leikin undir. Ég hef reyndar ekki séð þetta ennþá... við rétt misstum af þessu, en næst þegar það er ekki grenjandi rigning, rok eða þrumuveður þá ætlum við að smella okkur, gætum reyndar þurft að bíða nokkuð eftir þeim degi.




Við enduðum svo á því að borða frábæran japanskan mat, en við hliðin á var pizzastaður sem seldi skemmtilega skrautlegar pizzur......

3 comments:

Unknown said...

Sunna mín, alltaf gaman að frá fréttir af þér. Þetta með skypeið þá er ég búin að vera svaka busy og er á leiðinni á ættarmót yfir helgina. En ég LOFA að redda þessu strax eftir helgina.

Heyrumst sæta

LindaKrissó said...

Skemmtilegt þarna í Kína og Japan með að vera alltaf með myndir af öllum réttum á veitingastöðum..ja eða jafnvel plastlíkan!

Kveðjur frá STHLM!

Fjóla Ósk said...

mig langar að vera hjá þér .. :)