Thursday, July 3, 2008

Fuglar, blóm og cosmo

Það er eitt sem næstum allar stelpur, á öllum aldri, hafa gert á síðastliðnum mánuði. Það er að fara og sjá Sex and the City myndina. Svo við stelpurnar smelltum okkur síðasta sunnudag í bíó eftir eftirmiðdag á mörkuðum og satay-kvöldmat frammi á gangi í einni verslunarmiðstöðinni. Já þeir hafa aðeins öðruvísi viðmið hérna, veitingastaðurinn var með 3 herbergi á sama ganginum svo hann smellti bara upp borðum út allan ganginn... verst að ég á ekki mynd af því.
Markaðarnir sem við kíktum á voru þeir litríkustu sem ég hef nokkurn tíman séð. Blómamarkaður og fuglamarkaður, það er páfagauka-markaður.


Blómamarkaðurinn var æðislegur, skyldu stopp í Hong Kong, hann er ekki markaður í raun heldur samansafn nokkurra tuga lítilla blómabúða sem allar er staðsettar á sömu götunni. Rósir og túlípanar í öllum regnbogans litum, orkideur, bambus, bonsai tré og fjöldinn allur af blómum og trjám sem ég get ekki nefnt. Ég keypti orkídeu til að lífga upp ástórkostlega líflausa og niðurdrepandi herbergið á campus. Kom á óvart að þær kosta svipað og heima, ég reyndi að fá hann til að lækka verðið en neibb 900kr fyrir stykkið. Annars voru afskorin blóm mun ódýrari, á því verði að ég myndi alltaf hafa blóm heima hjá mér ef ég byggi hérna. 100-300kr. fyrir 10 rósir eða túlípana, 100 kr. fyrir 2-3 liljur sem voru það stórar að 3-5 væri fallegur vöndur. Versta er að það þarf víst vasa fyrir svoleiðis blóm og það er eitthvað sem ég á ekki hérna.


Tveir af strákunum komu með okkur á blómamarkaðinn og þeir voru aðeins stórtækari í sínum blómakaupum. Þeir keyptu sér tré fyrir herbergið sitt! Eins og sjá má á myndinni þá eru þeir afar stolir eigendur af dömu trénu sínu eins og þeir vilja meina að það sé. Tréið hefur því verið nefnt Juanita Penelope. Við hin erum ekki alveg svo viss um kyn trésins, hópurinn er sammála um að ef það þarf tvo stælta karlmenn til að rogast um með það, þá sé það einfaldlega ekki mjög kvennlegt.


Fuglamarkaðurinn eða páfagaukagarðurinn væri réttara var um það bil að loka þegar við komum en samt sáum við fleiri fugla en í Blómavali þegar þeir voru upp á sitt besta. Sigga hefði eflaust misst sig hérna, fuglarnir voru æðislegir, í öllum litum stærðum og gerðum og verðin voru alveg hreint hlægileg. Annars skilst mér að þeir verðleggi fuglana eftir því hversu hátt og fallega þeir syngja. Fagurgalarnir eru því dýrastir. Það voru ekki bara fallegir fuglar til sölu heldur líka ótrúlega falleg fuglabúr til sölu. Gamaldags fléttuð fluglabúr úr tréi sem fuglasölumennirnir gera sjálfir á milli þess sem þeir selja fugla. Hong Kong er klárlega staður þar sem fólk heldur upp á gæludýr, því ég mæti ávallt fjölda hunda í morgungöngutúrnum sínum á leið minni í vinnuna og hér er heil gata tileinkuð glæudýrabúðum. Þar er hægt að kaupa hvolpa, of krúttulega kettlinga, stórkostlega gullfiska, skjaldbökur, eðlur, naggrísa, hamstra og svona mætti lengi telja. Þó eru hundarnir, kettirnir og gullfiskarnir algengastir.

Aftur að bíóinu þá fórum við 4 stelpur að sjá myndina Sex and the City sem byggð er á samnefndum þáttum. Myndin var mjög fín fyrir utan að þeim tókst að troða inn nokkrum afar væmnum og klisjukenndum amerískum bíómyndasenum öðru hvoru, en ég er voða lítið hrifin af svoleiðis. Það var eitt af því sem gerði þættina svo góða, þeir voru ekki fyrirsjánlegir, of væmnir eða of klisjukenndir heldur meira raunverulegir. En við áttum fína stund í bíóinu fyrir utan kínverjan sem sat við hliðin á mér. Hann var í símanum allan tímann! Ég held að ég hafi beðið hann þrisvar sinnum um að vinsamlegast taka tillit til hinna gestanna í salnum. Svo eftir ca klst í símanum þá loksins stóð hann upp og fór fram til að tala í síman... og hann kom ekki aftur inn. Við stelpurnar, og orkídean okkar sem augljóslega er dama, enduðum svo kvöldið á bar á leiðinni heim og fengum okkur Cosmopolitan í tilefni myndarinnar. Blómið okkar hefur því séð ýmislegt...satay, bíó, bar og situr núna og horfir út á sundlaugina í næsta garði. Og hérna sést Sarah, herbergisfélaginn minn, halda á blóminu okkar heim af barnum... við höfum ekki nefnt hana ennþá, svo allra tillögur eru velþegnar.

No comments: