Tuesday, July 15, 2008

Afar skrautleg vika

Síðasta vika hefur verið eins og rússíbani...upp og niður upp og niður.



Byrjaði reyndar nokkuð vel, fórum á veðreiðar og það var skemmtilega skrítin upplifun.
Hong Kong er með 2 stóra og þá meina ég stóra veðhlaupavelli? Veit ekki alveg hvort það er rétta nafnið á íslensku. Ég geri fastlega ráð fyrir því að Bretar hafi verið svo elskulegir að kynna þá fyrir íþróttinni á þeirra tímum hér. En veðreiðar eru Hong Kong búum afar mikilvægar, hér eru keppnir allt að 5 sinnum í viku! Og þegar Bretar skiluðu landinu aftur til Kína, þá fannst fyrsta, og eina, "The Chief Executive of Hong Kong" eða einfaldlega yfirmanni Hong Kong eins og einn skiptinemanna kallaði hann, nauðsynlegt að minnast á veðreiðarnar í fyrstu opinberu ræðunni sinni! Þar fullvissaði hann Hong Kong búa að þrátt fyrir að bretarnir væru að fara þá myndu veðreiðarnar halda ótrauðar áfram.
Ég mætti því galvösk og spennt yfir fyrstu veðreiðunum mínum á veðhlaupavöllinn í Happy Valley og eins og ávallt í fylgd fríðs hóps IAESTE skiptinema. Við gengum fram hjá gullhúðuðum inngangi með 4 massífa dyraverði og þangað fór sko enginn inn, kannski Sir Tsang, yfirmaður Hong Kong eigi fast sæti þarna. Síðan tóku við inngangar á eftir inngöngum, sem eftir því lengra sem við gengum urðu minna mikilfeglegir og að lokum eftir 15min labb hálfan hringinn í kringum völlinn komum við að "Public entrance". Þar fengum við lýðurinn að ganga í gegnum hlið sem auðveldlega mætti nota í réttir á haustinn. Á móti okkur tók mannmergð (ekki að það sé neitt nýtt), bjór (heldur ekki nýtt) og hrossataðslykt en hana hef ég ekki fundið áður í Hong Kong. Þarna skemmti almúginn sér við að drekka bjór, dást að hestunum og spá í spilin svo ekki sé nú minnst á að labba upp bratta þrönga stiga upp á 7. hæð til að sjá yfir völlinn. (Við öfunduðum aðalinn í einkastúkunum bara "pínu lítið" yfir rúllustigunum sínum) Það er ekkert grín að skokka upp 7 hæðir í 30°stiga hita og 90% raka.
Þegar upp var komið tóku við misgáfulegar pælingar og aðferðir við að velja hvaða hest ætti að "veðja" á. Reyndar voru einu verðlaunin klapp á bakið og hrós frá hópnum því enginn gerðist svo djarfur að veðja á hestana. Já það er kannski réttara að taka fram að öll veðmál fóru fram á fyrstu tveimur hæðunum... það gæti haft örlítið letjandi áhrif á hópinn.
Mín taktík var einföld í byrjun... ég valdi nafnið á hestinum. Það var úr voða litlu öðru að velja, þeir voru allir jarpir að lit með pínu litla kjánalega klædda knapa á bakinu. Svo fyrir valinu var MARVELLOUS!!!
Og viti menn Marvellous stóð undir nafninu og sigraði! Komst að því seinna að þetta var fyrsti sigur hans á þessu tímabili og því fer að ljúka.
Í næsta hlaupi var það liturinn sem réð algjörlega úrstlitum um val á hesti. Út úr hópi jarpra... samt meira bara brúnna hesta birtist einn grár = hvítur. Svo Kingston Winner varð næstur fyrir valinu. Satt best að segja þá byrjaði hann vel og var með forusturna alveg fram í lokin en endaði fimmti... Ég hef því ákveðið að halda mig við nöfnin... og Thunder Flash stóð vel undir sínu í síðasta hlaupinu sem við horfðum á og endaði fyrstur.
Þeir mega eiga það að nöfnin ein eru skemmtun útaf fyrir sig...Good To Go, Wine Win, The World Of Love, Add The Fun, Here We Go, Sixty Seconds, Happy Sunday, Fun og svona heldur þetta áfram og áfram.

Það er hins vegar meira niður á við að þurfa að fá húsvörðinn til að opna herbergið mitt þriðja daginn í röð af því að herbergislykillinn minn virkar aldrei, þrátt fyrir að vera endurstilltur á hverjum morgni af fólkinu í afgreiðslunni. Það kann ekki að brosa.
Eða af fara snemma að sofa til að getað vakanað eldsnemma (kl 7!) á laugardegi af því að hópurinn ætlar að taka ferju á eyju í nágrenninu, já rétt að minnast á það. Einu ferjuna sem siglir þangað 1 sinni á dag. Til þess eins að lenda í leigubílnum sem vissi ekki hvert hann var að fara né að það væri yfir höfuð bryggja í þessum bæjar hluta, borga jafnvirði 4 kvöldmata og fá að horfa á alla hina sigla á brott um borð í ferjunni sem við misstum af. Og það rétt misstum af, hún var það nálægt að við vorum að spá í að hlaupa út landganginn og hoppa í von um að drífa um borð, en þá var okkur litið á sjóinn. Hann er það gruggugur og skítugur hérna að við hættum við.
Ekki hjálpaði til að á fimmtudaginn var nýju töskunni minni stolið með símanum, veskinu, nýju myndavélinni ja einfaldlega öllu nema passanum í. Sé nú reyndar mest eftir öllum myndunum sem ég var ekki búin að setja inn á tölvuna mína vegna plássleysis...
Ég fékk hins vegar að koma inn á kínverska löggustöð og hún var EKKERT lík þessari einu sem ég hef farið inn í. (bekkjarferð í 7.bekk í lögreglustöðina við Hverfisgötu) Mig hefur aldrei langað eins mikið til að vera með myndavél við höndina eins og þá!

Segir ykkur betur frá því seinna, þarf að hlaupa, Filipseyjar eru áfangastaður helgarinnar og ég þarf að fara ná strætó upp á flugvöll. Smelli inn myndum eftir helgi...


PS. Pabbi ef það eru stafsetningarvillur í þessu þá biðst ég afsökunar, hef ekki tíma til að lesa pistilinn yfir c",)

No comments: