Saturday, June 21, 2008

Reykjavík, London, Hong Kong og Macau á 48 tímum....

Á 48 tímum tókst mér að fara á útgáfutónleika Hraun, sem voru geggjaðir, hitta Andreas eldhressan kl 5 að morgni á leiðinni til Keflavíkur (meðan ég man, takk æðislega fyrir farið), röllta um London í 9 tíma, sofa í 11 tíma af 12 í flugvélinni, fara á pöbbarölt með írska herbergisfélaganum mínum og fara yfir til Macau.


Macau er eyja og smá landsvæði í klst siglingu frá Hong Kong sem líkt og Hong Kong er "Special Administrative Region" en það er eini staðurinn í Kína þar sem fjárhættuspil eru lögleg. Þess vegna er helgmingur húsana háglansandi, gull og silfur-lituð og alveg hreint ótrúleg í laginu ( held að takmarkið sé að vera með mest áberandi bygginguna) og hinn helmingurinn massíf, risavaxin, skítug háhýsi með litlum gluggum og ótrúlegum fjölda pínulítilla íbúða. Þarna býr heimafólkið.
Eyjan er ótrúlega skemmtileg að því leiti að það var portúgölsk nýlenda áður fyrr og það er fjöldinn allur af húsum og kirkjum sem passa engan veginn inn, af því að þetta er í miðri Asíu. Og svo eru líka hús sem blanda saman portúgölskum og kínverskum áhrifum... mér fannst þau ansi skondin. Verst að ég er ekki búin að kaupa mér myndavél, annars gæti ég smellti inn nokkrum mjög góðum....

Ég fór og skoðaði rústir af frægri kirkju á Macau, skoðaði safnið þeirra, virkji uppi í fjöllunum og stóran garð, svo þetta var nokkuð góð dags heimsókn. Eina ástæðan fyrir því að ég fór yfir til Macau er sú að þeir sem vilja vinna í Hong Kong þurfa að hafa vinnu vísa en það var ekki nægur tími til að senda það heim til Íslands áður en ég kom, svo ég kom inn í landið sem ferðamaður og þurfti því að fara aftur út úr því til að virkja vinnu-vísað mitt.


Á föstudaginn mætti ég inn til vinnu, en yfirmaðurinn minn er í frí þar til á mánudaginn, svo mér voru afhentir lyklar að skrifstofunni sem ég vinn í. Hún er vægast sagt skrautleg. VRII er í mjög góðu ástandi miðað við hana!!! Það er eiginlega bara hæðin sem ég vinn á sem er pínu svakaleg, því allar byggingarnar erum lýta mjög vel út utan frá. Og hæðin sem kennararnir eru með sínarskrifstofum erum mjög fínar, en þar sem nemendurnir vinna eru ekki eins fínar. Sem dæmi þá er teppi á gólfinu og ef að teppið er orðið hálf eytt eða komið gat á það, þá laga þeir það bara með því að klippa út ferhyrningslaga bút og smella ofan á. Nema bútarnir snúa ekkert endilega allir í sömu átt, heldur minnir þetta frekar á límlistaverk eftir 3 ára leikskólakrakka.

Þar sem yfirmaðurinn minn var ekki við, veit ég ekki alveg hvað ég er að fara gera og hafði engin verkefni á föstudaginn, svo prófessorinn sem fór með mig að skoða skrifstofurnar kom mér bókstaflega fyrir á bókasafninu og sagði mér að finna mér eitthvað að gera þar framm á hádegi og svo mætti ég bara fara.
Ég eyddi því seinni part dagsins í að röllt um algjörlega áttalaus um Hong Kong eyju, eða til kl 4 þegar ég hætti að vera þrjósk og stollt og halda að ég gæti fundið út úr þessu sjálf, svo ég spurði til vegar um bókabúð, en þar keypti ég stærstu og þykkustu bókina um Hong Kong. Svo hér eftir ætti ég að vita hvað snýr upp og niður og hvað er mest spennandi að sjá í hverju hverfi fyrir sig, ásamt ýmsum skemmtilegum staðreyndum. Hér er ein sem ég vissi ekki...

- Helsti misskilningur hjá fólki sem ekki hefur komið til Hong Kong eða er að koma í fyrsta skipti er að halda að landið sé bara borg, en um 80% landsvæðis Hong Kong er óbyggt landsvæði með plöntum og trjám og villtu dýralífi! -

Um kvöldið fór hópur af IAESTE krökkum út að borða og á kráarröllt um Kowloon, sá hluti Hong Kong sem ég bý í, í tilefni þess að Daniel átti afmæli, en hann kemur frá Norður-Írlandi. Við skemmtum okkur konunglega en komumst að þeirri miður skemmtilegu staðreynd að lítill flösku bjór á bar kostar um 600kr! Sem er frekar sjokkerandi þar sem það er hægt að fá mjög fínan kvöldmat fyrir 250-320kr, og það er ekki einu sinni það ódýrasta, hef ekki lagt í 50-150kr klassan ennþá.

Jæja læt þetta nægja í bili.

Sunna, sem er ekki lengur týnd í Hong Kong

4 comments:

LindaKrissó said...

Velkomin á bloggið! Þú verður að fá þér myndavél svo ég geti sýnt krökkunum myndir af þér í Hong Kong.

Nýjasta áhugamálið hans Sindra Dags eru fánar og landafræði. Hann er því vel meðvitaður um á hvaða síðu Hong Kong er í kortabókinni sinni ;-)

Sindri said...

Ég get ekki sagt að það hafi komið mér sérstaklega á óvart að þú hafir sofið í 11 af 12 klst í fluginu en ég hlakka til að lesa um frekari ævintýri.

Með kveðju,
Sindri

Sóley Gréta Sveinsdottir Morthens said...

Jæja - komin með blogg!
Það er gaman að lesa bloggið þitt-endilega vertu dugleg að skrifa um það sem fyrir augu ber. Gangi þér vel á nýjum slóðum.
Sóley Gréta

Sóley Gréta Sveinsdottir Morthens said...

Þetta átti nú ekki að vera frá bloggi skemmtinefndar vinnunnar!
Sóley