Saturday, June 28, 2008

Fyrsta vinnuvikan

Á mánudaginn mætti ég svo til vinnu og hitti þá yfirmanninn minn, Dr.Fu í fyrsta skipti. Hann er lítill frekar krúttulegur kínverji sem borsir rosa mikið og kinnkar kolli en hann er frá meginlandinu, svo hann talar ekki Cantonese eins og þau gera hérna heldur Mandarin sem er mest talaða mállýskan í Kína og opinbera tungumálið þeirra. Við hittumst og ræddum hvað ég ætti að gera í sumar. Í byrjun vildi hann vita hvort að ég ætti að gera lokaverkefni fyrir B.Sc eða skila inn skýrslu til skólans míns því ef svo væri mætti ég einfaldlega vinna í lokaverkefninu mínu svo lengi sem það tengdist "Integrated Product and Process Design Paradigm for Automotive Metal Components Forming" Eftir að ég sagði honum að ég væri hérna á mínum eigin vegum en ekki HÍ þá ákváðum við að ég skyldi byrja á því að læra á forritið DEFORM sem er hermiforrit fyrir mótun málm hluta.
Við fórum því næst á tilraunastofuna sem ég verð að vinna á, það er önnur skrifstofan mín. Þar eru þrír aðrir með aðstöðu, veit reyndar ekki alveg hvað þeir eru að gera þar sem mér skilst að þeir séu allir búnir að ljúka doktorsgráðunum sínum, en þeir eru allavega allir frekar hlédrægir og niðursoknir í vinnuna sína allan daginn. Ég eyddi því fyrsta deginum mínum í að fara í gegnum tutorials fyrir forritið og hitta hina skiptinemana í hádegismat.
Fólkið hérna vinnur á allt öðrum tímum en við erum vön. Þau mæta milli 9 og 10:30 í vinnuna, taka eins og hálfs tíma hádegismat, og oft aðra pásu til að fara í badminton, svo vinna þau til 8-10 á kvöldin. Ég er ekki alveg búin að finna út hvenær fjölskyldur hittast eða hvort að það sé nokkurn tíman eldaður kvöldmatur á venjulegum heimilum hérna á virkum dögum. Svona vinnudagur gefur ekki mikin tíma afgangs í fjölskyldu, vini né áhugamál. Þarf að kynna mér það betur.



Já og ef þau verða þreytt í vinnunni þá draga þau bara upp koddan sinn og leggjast fram á borðið! Það virðist vera viðurkennt hérna að þetta þyki alveg eðlilegt því að yfirmaðurinn vekur þau ekki ef hann kemur inn, hann einfaldlega læðist um og passar sig að vekja ekki þá sem sofa!

Á þriðjudaginn kom svo einn af doktorsnemum Dr.Fu að hjálpa mér með hermunarforritið. Eftir að hafa smellt inn nauðsynlegum gögnum og upplýsingum ýtti hann á KEYRA og sagði mér svo að svona keyrsla tæki frá 3 tímum upp í 12 tíma svo ég gæti alveg eins farið heim þennan daginn! Já og klukkan var rétt rúmlega 1...

Hérna í Hong Kong ganga reglulega yfir hitabeltisstormar eða fellibylir. Þeir eru því með númerakerfi til að vara almenning við þegar fellibylur nálgast:

1 fellibylur í 800km fjarlægð
3 sterkur vindur sem líklegur er til að aukast á næstu 12 tímum
8 fellibylur er líklegur í að fara yfir Hong Kong og að vindhraði hans sé 20-35m/s
9 að vindhraðinn eigi eftir að aukast töluvert
10 fellibylsvindur með vindhraða 35-65m/s



Á mánudaginn var búið að setja upp skilti með 1 út um allt og þegar við fórum heim úr vinnunni á þriðjudaginn var það komið í 3. Svo á miðvikudagsmorguninn var búið að gefa út fellibyls viðvörun, númer 8, en það þýðir að allir eiga að halda sig heima og þurfa ekki að fara í vinnuna og almennings samgöngur eru lágmarki. Við héldum okkur því heima um morgunin og nutum þess að mega sofa út. Upp úr hádegi var búið að breyta merkinu í 3 þar sem fellibylurinn Fengsen ákvað að sleppa því að fara yfir Hong Kong um 20km frá stöndinni og beygja heldur upp og skella sér til Kína. Yfirmaðurinn minn hringdi um 12 og sagði mér að vera bara heima í dag, það væri of hættulegt fyrir mig að fara út í vindinn (sem var á þeim tímapunkti um 12 m/s = smá vindur) Mér fannst það bara nokkuð skondið að í 100km fjarlægð var fellibylur með vindhraða 25m/s í miðjunni, sem er nú ekki svo svakalegt, að það væri of hættulegt þetta langt frá honum fyrir mig að labba í vinnuna. Já og það besta er að frá campusnum get ég labbað á nokkurs konar "skywalk" eða gangstétt sem er fyrir ofan umferðina alla leiðina í skólan og það er yfirbyggt. Svo þótt það sé rignin þarf ég ekki regnhlíf til að komast í vinnuna sem er um 15 min labb. Ég hélt mig annars bara heima þann daginn aðalega af því að allir aðrir voru í vinnunni.

Annars er myndavél frá Canon er komin í hús og nú tekur við törn af fjölda mynda hjá mér til að deila því hvernig ég er að upplifa þessa stóru, skrítnu en skemmtilegu borg.

Já og það heldur áfram að fjölga í hópnum okkar. Stelpa frá Köben og önnur frá Mexico eru komnar ásamt tveimur strákum, annar frá Austurríki en hinn frá Grikklandi og við búumst við 3 í viðbót um helgina. Við förum því örtstækkandi og leggjum nú á ráðin um að taka yfir eins og eitt félagsherbergi eða svo. Það ætti reyndar ekki að vera vandamál þar sem lang flestir nemendurnir eru fluttir aftur heim yfir sumarið...

3 comments:

Fjóla Ósk said...

heheh ... þeir ættu þá ekki að koma til íslands, búið að spá 5-12m/s hér alla vikuna!

Unknown said...

Jeeei, þetta tókst hjá mér!

Búin að reyna að kommenta hjá þér í nokkra daga....en aldrei virkað.

Gott og gaman að heyra frá þér. Ég á eftir að sakna þín mikið um helgina snúðurinn minn en ég veit að þú hefur það svo gott og ert að skemmta þér vel!

Knús til þín

Unknown said...

vá hvað ég á ekki til orð yfir þessu lúllu-leggja sig máli.
Sunna þú verður að passa þig að fjúka ekki! hahahaha
fyndið þegar maður rekst á svona "harkalega" á menningarmun. Er mér ennþá ferskt í minni þegar Kanarnir voru við það að missa vatnið yfir ílinum og pjúff-rakettunum 4th of July!!! vá ég nennti ekki einu sinni að hreyfa hausinn til að sjá þær (kannski ekki alveg sanngjarn samanburður...var náttla búsett við hlið rakettu-óðflugna á þessum tíma;)
Fer til Parísar í kvöld, nálgast þig því smá sæta.
Kys og kram. þin gunnamaja